Niet blij met je aankoop? Geeft niet! Bij ons kun je binnen 30 dagen retourneren
Met een cadeaubon zit je altijd goed. De ontvanger kan de cadeaubon voor alles uit ons assortiment inwisselen.
Voldug drottning með græna fingur liggur fyrir dauðanum. Á ævi sinni hefur hún ræktað upp heimsins fegursta blómagarð með öllum afbrigðum af blómum. Nú er ekkert sem gæti forðað henni frá dauðanum nema það að henni verði færð fegursta rós heimsins. Mörg verða til að leita hennar og færa henni hin fegurstu blóm. Skáldin yrkja um rósina og fljótlega verður fólki ljóst, að ekki er endilega verið að sækjast eftir blómi í bókstaflegri merkingu. Leitar það þá í hjörtum sér og finnur þar kærleika og trú. En fegursta rós heimsins er ekki endilega manneskja á meðal vor. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.-